![]() |
Fangelsið að Litla-Hrauni. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason. |
Ráðist var á 18 ára gamlan fanga í fangelsinu á Litla-Hrauni í gær, þriðjudaginn 22. janúar 2017, fleiri en einn áttu aðild að árásinni og var fanginn fluttur á sjúkrahús í kjölfarið.
Vísir greindi fyrst frá málinu.
Í samtali við mbl.is segir Elís Kjartansson, rannsóknarlögreglumaður á Selfossi, að árásin sé litin alvarlegum augum, enda hafi hún verið gróf og alvarleg. Árásin átti sér stað í íþróttahúsinu á Litla-Hrauni.
Enginn hefur verið yfirheyrður vegna árásarinnar en rannsókn málsins er í fullum gangi.
Af www.sunnlenska.is
Skráð af Menningar-Staður
© 2019 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is