Opnunarhátíð sjöundu Safnahelgarinnar verður í da, fimmtudaginn 30. október 2014, í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn með stuttu málþingi, Safnið mitt – safnið þitt. Þar munu þau Sigurjón Baldur Hafsteinsson dósent í safnafræði við Háskóla Íslands, Þorsteinn Hjartarson fræðslufulltrúi Árborgar og Alma Dís Kristinsdóttir safnafræðingur flytja erindi um safna- og samfélagsmál. Einnig verða í hraðfréttastíl kynnt áhugaverð verkefni í barna- og fræðslustarfi nokkurra safna frá sitthvorum enda Suðurlands, Hornafirði og Þorlákshöfn.
Opnunarhátíð er öllum opin og hefst kl. 16:00.
Í boði verða spennandi erindi, léttar veitingar og tónlistarflutningur.
Safnið mitt – safnið þitt – nánar um málþingið hér
Í kjölfarið verða viðburðir, um allt Suðurland fram til sunnudagsins 2. nóvember.
Samtök safna á Suðurlandi vona að sem flestir njóti þess sem er í boði.
Dagskrá Safnahelgar
Af www.sass.is
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is