![]() |
og Siggeir Ingólfsson. |
Heiðursstund Geira
- á Stað 14. okt. 2019 -
Vinir alþýðunnar í Eyraþorpum og Hrútavinir héldu kveðjuhóf fyrir Siggeir Ingólfsson f.v. staðarhaldara í Samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka þann 14. október 2019. Þar hafa þessir aðilar undir forystu Geira haldið marga veisluna á þeim 7 árum sem hann rak Stað. Nú var boðið upp á svið og að venju lögðu margir í púkkið en sviðin komu frá Magnúsi Greirssyni á Fornusöndum.
Að venju var bókahappadrætti og nú bækur brá Bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi. Margar ræður voru fluttar og Siggeir mærður í bak og fyrir og fékk hann gjafabréf frá Hótel Selfossi með mat og gistingu sem kveðjugjöf Vina alþýðunnar sem voru um 50 talsins á þessari hátíð.
Nýir aðilar þau; Elín Birna Bjarnfinnsdóttir og Ingólfur Hjálmarsson tóku við rekstri að Stað í sumar og er sami kraftur þar og fyrr enda mikið að gerast í mannlífi og fögnuðum á Stað.
Siggeir Ingólfsson, yfirstrandvörður Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi, er fluttur í Stykkishólm og mun þar sinna sérverkefnum Hrútavinafélagsins á nýjum stað enda hefur hann verið mjög virkur félagi í 20 ára farsælli sögu þess félags.
Forseti Hrútavinafélagsins Örvars, Björn Ingi Bjarnason, skipaði Siggeir Ingólfsson sem yfir-eyjavörð Breiðafjarðareyja og Siggeir skipaði síðan Ingólf Hjálmarsson sem sinn eftirmann sem yfir-strandvörður á Suðurlandi.
Samkoman var færð til myndar og er myndaalbúm á þessari slóð:
http://menningarstadur.123.is/photoalbums/292429/
Nokkrar myndir:
![]() |
||||||||||||||||||||||
F.v.: Ásmundur Friðriksson og Siggeir Ingólfsson.
|
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is