![]() |
Áramótabrennur í Árborg 2017
Kveikt verðu í áramótabrennum á eftirfarandi stöðum í Sveitarfélaginu Árborg þann 31.desember nk. ef veður leyfir. Sveitarfélagið hvetur alla til að fara varlega kringum brennurnar og minnir á mikilvægi þess að allir hafi öryggisgleraugu sem eru að skjóta upp flugeldum.
Brennur eru á eftirfarandi stöðum
– Á gámasvæðinu, Víkurheiði á Selfossi kl. 16:30
– Við Hafnarbrú á Eyrarbakka kl. 20:00
– Við Arnhólma á Stokkseyri kl. 20:00
Skráðaf Menningar-Staður.
![]() |
F.v.: Birgir Marteinsson, Halldór Valur Pálsson Guðjón Stefánsson
og Haraldur Arngrímsson.
Starfslokateiti á Litla-Hrauni 28. des. 2017
Yfirstjórn Litla-Hrauns bauð fimmtudaginn, 28. desember 2017, til kaffistundar með kræsingum til heiðurs fangavörðunum Guðjóni Stefánssyni og Haraldi Arngrímssyni. Þeir létu af störfum fyrr á árinu vegna aldurs. Guðjón hóf störf á Litla-Hrauni árið 1979 og Haraldur árið 1994.
Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður Litla-Hrauns, stýrði samkomunni og ávarpaði Guðjón og Harald og þakkaði þeim farsæl störf á starfstímanum. Í lokin færði hann þeim gjöf frá Litla-Hrauni.
Síðan kallaði Halldór Valur til Björn Inga Bjarnason hjá Ljóðasetri Litla-Hrauns sem flutti meðfylgjandi ljóð og skýrði tilurð þess:
Áratugi áttuð hér
eftirsjá í köppum.
Farsæld ykkar fögnum vér
fyrir þeim nú klöppum.
.
Björn Ingi Bjarnason og Ingvar Magnússon færðu strundina til myndar.
Myndaalbúm með 35 myndum er komið á Menningar-Stað á þessari slóð:
http://menningarstadur.123.is/photoalbums/284808/
Nokkrar myndir hér:
![]() |
||||||||||||||||
og Halldór Valur Pálsson.
|
![]() |
Gils Guðmundsson (1914 - 2005). |
Gils Guðmundsson fæddist í Hjarðardal innri í Önundarfirði 31. desember 1914, sonur Guðmundar Gilssonar, útvegsb. í Hjarðardal, og k.h., Sigríðar Hagalínsdóttur.
Foreldrar Guðmundar: Gils Bjarnason á Mosvöllum og Guðmundína Jónsdóttir, systir Guðnýjar, ömmu Jónu, ömmu Ólafs Þ. Þórðarsonar og Kjartans Ólafssonar alþm. Foreldrar Sigríðar: Hagalín Þorkelsson og Sólveig Pálsdóttir.
Kona Gils var Guðný Jóhannesdóttir en dóttir þeirra er Erna Sigríður Gilsdóttir, kennari í Danmörku. Stjúpsonur Gils er Úlfur Árnason, doktor í Lundi.
Gils lauk kennaraprófi frá KÍ 1938, var sjómaður 1934-40, kennari við Íþróttaskólann í Haukadal og við unglingaskóla í Garði og Sandgerði, rithöfundur frá 1942, blaðamaður og ritstjóri 1943-56 og framkvæmdastjóri Menntamálaráðs og Bókaútgáfu Menningarsjóðs 1956-75.
Gils var alþingismaður Reykjavíkur fyrir Þjóðvarnarflokk Íslands 1953-56 og þingmaður Reykjaneskjördæmis fyrir Alþýðubandalagið 1963-79. Hann var formaður Þjóðvarnarfélags Reykjavíkur 1953-54 og varaformaður Þjóðvarnarflokksins 1960-62, formaður Rithöfundasambands Íslands 1957-58 og formaður félagsins Ísland – Færeyjar.
Gils sat í Rannsóknaráði ríkisins, var skipaður í endurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og náttúruvernd, var formaður fiskveiðilaganefndar frá 1971, sat í Norðurlandaráði 1971-74, í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar og í Þingvallanefnd. Hann sat á Allsherjarþingi SÞ 1970 og á hafréttarráðstefnu SÞ 1974-75.
Gils samdi fjölda sagnfræðilegra rita og skrifaði sögu ýmissa stéttarfélaga. Má þar helst nefna Skútuöldina, Togaraöldina og Vestfirska sagnaþætti. Þá ritstýrði hann tímaritum og bókum, s.s. bókunum Öldin sem leið 1800-1900 og Öldin okkar, frá 1900-1980.
Gils lést 29. apríl 2005.
Morgunblaðið.
![]() |
Séð yfir Önundarfjörð að Holtsodda og Hjarðardal. Ljósm.: BIB
Skráð af Menningar-Staður.
![]() |
Flugeldasala á Eyrarbakka
Flugeldasalan okkar verður sem fyrr í húsi Björgunarsveitarinnar Bjargar að Búðarstíg 21, 820 Eyrarbakka og verður opin sem hér segir:
28. desember 13:00 – 22:00
29. desember 13:00 – 22:00
30. desember 10:00 – 22:00
31. desember, gamlársdagur 10:00 – 16:00
Úrvalið getið þið skoðað á www.flugeldar.is/
Við treystum á ykkar stuðning
Þið megið gjarnan deila þessari færslu til þess að sem flestir sjái opnunartímann.
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Einar Oddur Kristjánsson (1942 - 2007). |
Einar Oddur Kristjánsson fæddist á Flateyri 26. desember 1942 og hefði því orðið 75 ára í gær. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Ebenezersson skipstjóri, f. 1897, d. 1947, og María Jóhannsdóttir, stöðvarstjóri Pósts og síma á Flateyri, f. 1907, d. 2003.
Einar Oddur stundaði nám í Héraðsskólanum á Núpi í Dýrafirði og í Menntaskólanum á Akureyri. Frá árinu 1968 starfaði Einar Oddur við sjávarútveg, fyrst sem einn af stofnendum og framkvæmdastjóri hlutafélagsins Fiskiðjunnar Hjálms. Hann var síðar stjórnarformaður hlutafélaganna Hjálms, Vestfirsks skelfisks og Kambs.
Einar Oddur sat í hreppsnefnd Flateyrarhrepps 1970-1982, var formaður Sjálfstæðisfélags Önundarfjarðar 1968-1979, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1979-1990 og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum 1990-1992.
Einar Oddur sat í stjórn Vinnuveitendafélags Vestfjarða frá árinu 1974. Hann var í aðalstjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 1989-1994, stjórnarformaður Vélbátaútgerðarfélags Ísfirðinga frá árinu 1984 og sat í stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva 1981-1996. Hann var formaður efnahagsnefndar ríkisstjórnarinnar 1988. Formaður Vinnuveitendasambands Íslands var hann 1989-1992 og sat í stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs 1995.
Einar Oddur var alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1995 til dánardags. Á Alþingi átti hann sæti í mörgum nefndum en lengst og mest starfaði hann í fjárlaganefnd, var varaformaður hennar 1999-2007 og jafnframt aðaltalsmaður síns flokks í ríkisfjármálum.
Hinn 7.10. 1971 kvæntist Einar Oddur Sigrúnu Gerðu Gísladóttur hjúkrunarfræðingi, f. 20.11. 1943. Börn Einars Odds og Sigrúnar Gerðu eru Brynhildur, Kristján Torfi og Teitur Björn.
Einar Oddur lést 14. júlí 2007.
Morgunblaðið 27. desember 2017.
![]() |
F.v.: Ásmundur Stefánsson, Haukur Halldórsson, Einar Oddur Kristjánsson.
|
Skráð af Menningar-Staður.
![]() |
Jólaball Kvenfélagsins 27. des. 2017
Jólaball Kvenfélags Eyrarbakka að Stað á Eyrarbakka
miðvikudaginn 27. desember 2017 kl. 15:00
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Jóladagsflöggun við Stað á Eyrarbakka
![]() |
||||
.
|
![]() |
Eyrarbakkakirkja - hátíðarguðsþjónusta á jólanótt
Hátíðarguðsþjónusta í Eyrarbakkakirkju á jólanótt 24. desember kl. 23.30.
Hátíðarsöngur og jólasálmar á helgri jólanótt. Kór Eyrarbakkakirkju syngur. Organisti Haukur Arnarr Gíslason.
Sr. Kristján Björnsson þjónar fyrir altari og prédikar.
![]() |
Skráð af Menningar-Staður |
![]() |
Gleðileg jól
gott og farsælt komandi ár
Þökkum liðin ár
Félagsheimilið Staður á Eyrarbakka
Menningar-Staður
Alþýðuhúsið á Eyrarbakka
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Skötuveisla Ungmennafélags Stokkseyrar
Árleg skötuveisla Ungmennafélagsins verður haldinn í Íþróttahúsi Stokkseyrar í dag, laugardaginn 23. desember 2017.
Húsið opnar kl 11:00
Borðhald hefst kl 11:30.
Eins og undanfarið verður boðið upp á daufa skötu, sterka skötu og saltfisk með tilheyrandi meðlæti.
Gos selt á staðnum en verð fyrir 12 ára og eldri er 3.000 kr, en 1.500 fyrir yngri en 12 ára.
Höldum í hefðirnar og styrkjum um leið gott málefni.
![]() |
Skráð af Menningar-Staður
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is