![]() |
|
1. maí kaffi á Eyrarbakka
að Stað á Eyrarbakka kl. 15 - 17
Velkomin
Kvenfélag Eyrarbakka
![]() |
Mynd/Linda Ásdísardóttir |
Afmæli á Bakkanum
Konubókastofa á Eyrarbakka er fimm ára um þessar mundir og því verður fagnað í Rauða húsinu á Eyrarbakka í dag, sunnudaginn 29. apríl 2018 kl. 14:00. Anna Jónsdóttir er stofnandi stofunnar.
Konubókastofa á Eyrarbakka var formlega opnuð með 200 manna hátíð í Rauða húsinu 25. apríl 2013 og haldið verður upp á fimm ára afmælið á sama stað í dag, sunnudag, klukkan 14.
Markmið stofunnar er að halda til haga þeim ritverkum sem íslenskar konur hafa skrifað í gegnum tíðina. Hugsjónakonan Anna Jónsdóttir segir hugmyndina að safninu hafa byrjað að gerjast hjá sér þegar hún var í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. En hvernig hefur gengið?
„Miklu betur en ég hafði reiknað með og það er ástæða til að halda upp á það,“ segir hún og kveðst fá ótrú- lega mikið af bókum. Allt bækur eftir íslenskar konur og einnig nokkrar sem íslenskir karlar hafa skrifað um íslenskar konur. „Svo erum við líka með tímaritin sem konur hafa gefið út. Eigum til dæmis nokkur eintök af kvennablaðinu sem hún Bríet Bjarnhéðinsdóttir gaf út fyrir þarsíðustu aldamót.“
Hver er elsta bókin?
„Eins og stendur er það handavinnubók frá 1897 en við erum að fá aðra eldri, ljóðabókina Stúlku frá 1876, eftir Júlíönu Jónsdóttur sem var fyrst íslenskra kvenna til að gefa út skáldrit.
Eru þær til láns þessar bækur?
Nei, ég lána þær ekki. Fólk getur bara komið og flett og skoðað. Ég verð að halda í bækurnar, er voða leiðinleg og neita alltaf. En ég er með gott borð og stóla og það er mikið um að fólk komi, fletti og skoði.
Hafðir þú einhverja fyrirmynd þegar þú fékkst hugmyndina?
„Ekki beint. En ég sá safn í Englandi, Chawton House Library, sem er bara með bækur eftir konur og er opið einu sinni í viku. Þar eru yngstu bækurnar frá 1830. Svo veit ég um safn sem ég á eftir að skoða í Glasgow, það er nær þessu sem ég er með, þó segja margir að þetta safn sé einstakt.“
Er þetta hugsjónastarf hjá þér?
„Já, algerlega en ég hef fengið styrki, til dæmis fékk ég styrk til að halda afmælishátíðina,“ segir Anna og telur upp dagskráratriði eins og ávarp bæjarstjóra Árborgar, Ástu Stefánsdóttur og erindi Dagnýjar Kristjánsdóttur pró- fessors um Ragnheiði Jónsdóttur rithöfund sem fæddist á Stokkseyri 1895. Einnig munu nokkrir verðlaunahafar Fjöruverðlaunanna 2017 og 18 fjalla um verk sín. Og að sjálfsögðu verður kaka!
gun@frettabladid.is
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
|
Eyrarbakkafundur S-listans í Árborg
Laugardaginn 28. apríl 2018 kl. 10:00 - 12:00
Menningar-Staður færði til myndar.
Myndaalbúm:
http://menningarstadur.123.is/photoalbums/286010/
Nokkrar myndir:
|
![]() |
||||||
.
|
.
![]() |
.
|
|
||
(1894 - 1961) |
Kristín Thoroddsen fæddist á Ísafirði. 29. apríl 1894, dóttir Skúla Thoroddsen, sýslumanns á Ísafirði, alþm. og ritstjóra, og Theodóru Thoroddsen skáldkonu.
Skúli var bróðir Þorvalds Thoroddsen náttúrufræðings, Sigurðar landverkfræðings, föður Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra, og Þórðar, læknis og alþm., föður Emils tónskálds, en Theodóra var móðursystir Muggs og Péturs Thorsteinssonar sendiherra.
Meðal systkina Kristínar voru Guðmundur yfirlæknir; Skúli alþm.; Katrín læknir og alþm.; Bolli borgarverkfræð- ingur og Sigurður, verkfræðingur og alþm.
Kristín ólst upp á Bessastöðum frá sjö ára aldri, lauk gagnfræðaprófi frá MR, var við nám og störf á Dronning Louises barnaspítalanum í Kaupmannahöfn, stundaði hjúkrunarnám, og brautskráðist 24 ára frá hjúkrunarskóla Kommune-spítalans í Esbjerg. Hún vann síðan m.a. á röntgendeild Bispebjergs-spítalans, á Finsens Institut og við Röntgenstofnunina í Reykjavík, starfaði í Valpariso í Chile í þrjú ár, stundaði nám við Bedford College í London, var við einkahjúkrun í New York og fjögur ár Rauða kross systir vítt og breitt um Ísland.
Kristín var ráðin fyrsta yfirhjúkrunarkona Landspítalans 1931, fyrsti skólastjóri Hjúkrunarkvennaskóla Íslands við stofnun 1931 og aðalkennari hans. Hún var einn stofnenda Félags íslenskra hjúkrunarkvenna og sat þar í fyrstu stjórn. Hún var, ásamt frú Sigríði Eiríksdóttur, móður Vigdísar Finnbogadóttur, brautryðjandi í hjúkrun hér á landi enda voru þær báðar sæmdar Florence Nightingale orðunni (heiðursmerki alþjóða Rauða krossins) og riddarakrossi Fálkaorðunnar.
Kristín lést 28. febrúar 1961.
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Opnir fundir á Eyrarbakka og Stokkseyri
Laugardaginn 28. apríl 2018
Samfylkingin í Árborg heldur opna fundi um málefni sveitarfélagsins laugardaginn 28. apríl 2018
kl. 10 til 12 að Stað á Eyrarbakka
og kl. 12 til 14 í vinnustofu Elfars Guðna í Menningarverstöðinni Hólmaröst á Stokkseyri.
Frambjóðendur flokksins til sveitarstjórnar verða á staðnum.
Allir hvattir til að mæta.
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Árborg og nágrenni.
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Alþýðuhúsið á Eyrarbakka 26. apríl 2018
Vinir Alþýðunnar.
Ljósm.: Ólafur Ragnarsson.
![]() |
Skráð af Menningar-Staður
![]() |
Eyrarbakkafundur D-listans í Árborg
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 kl. 19:30 - 21:00
Menningar-Staður færði til myndar.
Myndaalbúm:
http://menningarstadur.123.is/photoalbums/285985/
Nokkrar myndir:
![]() |
||||||||||
. .
|
.
![]() |
Skráð af Menningar-Staður |
![]() |
Siggeir Ingólfsson.
|
Sjálfumgleðiferð upp að Ölfusá 25. apríl 2018
Menningar-Staður á Eyrarbakka fór í dag, miðvikudaginn 25. apríl 2018, upp að Ölfusá við Selfoss.
Um var að ræða svokallaða -sjálfumgleðiferð- en slikt hátterni er að færast í aukana síðustu; mánuði, misseri og ár.
Innihald slíkra ferða er að hitta mann og annan og hafa gaman af.
Komið var á þessa staði:
Menningar-Staður færði til myndar.
Smella á þessa slóð: http://menningarstadur.123.is/photoalbums/285976/
Nokkrar myndir hér:
![]() |
||||||||||||
F.v.: Sigurjón Erlingsson og Siggeir Ingólfsson.
F.v.: Björn Ingi Bjarnason og Siggeir Ingólfsson.
|
![]() |
Fundir á Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfossi
Eyrarbakka - á Stað 26. apríl kl. 19:30
Nú stefnir í sex framboð til sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Árborg 26 maí nk. Það eru því 108 einstaklingar sem bjóða fram krafta sína í þágu okkar samfélags og er það fagnaðarefni.
Við sem skipum eitt þessara framboða D-listann erum að undirbúa okkur og okkar málefnaskrá og við leitum til ykkar íbúanna.
Málefnin langar okkur að móta með ykkur íbúunum og hvetjum ykkur til þess að koma og taka þátt í málefnavinnunni og hafa áhrif á stefnuskránna.
Allir velkomnir.
Kjartan Björnsson skrifar á Facebook-síðu sinni.
![]() |
Skráð af Menningar-Staður
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is